Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Lilja Kristín Jónsdóttir
  • Netfang: liljakrj@yahoo.com
  • Staður: Egilsstaðir

Auglýsing

Lagið:

"Emily" - Joanna Newsom

Helv... leti

23. janúar 2007 klukkan 22:24
Hvernig er það...er ekki hægt að gera hlutina bara stundum? Ég nenni hvorki einu né neinu þessa stundina, bara alveg hreint ekki. Hef sjaldan upplifað svo sterka leti.

Ég og Janni panni spýturass erum á leiðinni suður á morgun að keppa í X factor....
DJÓK! DJÓK VIÐ ERUM EKKI AÐ FARA AÐ KEPPA Í X FACTOR!
Við erum að fara að spila á tónleikum á föstudaginn á Barnum, og á laugardaginn á Prikinu þar sem Sir B-Ruff þeytir svo skífum fram á nótt. Sannkallaður þeytingur á ferð.
Tilhlökkunin vegur 50%, en á móti kemur að stressið vegur einnig um 50%. Sérstaklega þar sem að eina fyrirhugaða æfingin fyrir suðurferð átti að vera í gær, en Drottin Guð Jesúm Kristur greip þar inn í og sendi mig á minni konunglegu reið beint útaf veginum og inn í snjóskafl, sem ég held reyndar að hafi verið blandaður lími miðað við hversu erfitt það var að komast aftur upp úr honum. Eftir um það bil 6 misheppnaðar tilraunir og tvö slitin reipi fengum við björgunarsveitina til að koma og losa um blessaða músina mína sem hafði greinilega ekki hugsað sér til hreyfings það kvöldið. Bjöggararnir mættu á geimferðabíl sem hefði líklega komist án teljandi erfiðleika til sólarinnar og til baka, og líklega með reipi á þykkt við mannshöfuð. Með þennan jötunbúnað með sér tókst þeim þetta að lokum, og ég, Raggi og Janus keyrðum heim með kalsár beint í kakóbolla í Laufásnum.

En jæja, þessi skrif hafa að nýju vakið metnað minn í garð námsbókanna, svo ég kveð héðan úr Laufásnum, og bið ykkur vel að lifa. Þó ber ég sérstaklega sterkar tilfinningar til þeirra sem mæta á tónleikana okkar um helgina.

Blessi ykkur öll!
 
Helgi
Þetta er alltaf svona til að byrja með í skólanum, maður nennir engu og gerir ekkert. En maður áttar sig þegar skólinn er langt á liðinn að maður tekur sig á og nær upp.

Gangi ykkur vel og skemmtið ykkur á tónleikunum! :)
#1
24. janúar 2007 klukkan 22:45
Brjotid fotlegg! Gott ad heyra ad enginn meiddist i utafakstrinum. Myndi maeta ef eg vaeri i RVK, eda yfirleitt a landinu.
#2
24. janúar 2007 klukkan 23:25
Gangi ykkur vel á tóleikum, ég svaraði heimskuelga spurningarkommentinu þínu á síðunni minni..

Músa þig :*
#3
26. janúar 2007 klukkan 00:41

Skrifa athugasemd

SUMARFRÍ

Könnun

Kynþokkafyllsti maðurinn á skjánum?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...