Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Lilja Kristín Jónsdóttir
  • Netfang: liljakrj@yahoo.com
  • Staður: Egilsstaðir

Auglýsing

Lagið:

"Emily" - Joanna Newsom

Nægjusöm.

02. febrúar 2007 klukkan 20:12
Ég er óánægð með marga hluti.
Ég er til dæmis óánægð með bílastæðaaðstöðu Menntaskólans á Egilsstöðum. Hver getur sagt mér hve mikil niðurlæging það er að koma á bílnum í skólann...og þurfa svo í alvöru að keyra heim aftur og skila bílnum og labba aftur í skólann? Þetta er einfaldlega ekki hægt.
Ég er óánægð með það að ríkt fólk þurfi ekki að borga neitt á Íslandi.
Ég er óánægð með að í staðinn fyrir að gefa peninga til sveltandi fólks í Afríku ákveður sumt fólk að bóka Elton John í afmælið sitt.
Ég er óánægð með hálkuna sem er á Egilsstöðum....HVAÐ ER FOKKING MÁLIÐ? Er þetta eitthvað grín? Það er liggur við ÓFÆRT um gangstéttir bæjarins...og ef maður fer á bílnum þá ER HVORT SEM ER EKKERT BÍLASTÆÐI.
Ég er óánægð með þá staðreynd að súkkulaði er óhollt. Það sama gildir einnig um Héraðsbát í Shellinu, beikonpulsur, ís og fleira.
Ég er óánægð með að Ísland skyldi TAPA fyrir Dönum...á síðustu sekúndunni í leiknum. Ég hefði alveg haft trú á okkur upp í heimsmeistaratitilinn. Þetta var einn af fáum sjónvarpsbundnum íþróttaleikjum...eða bara sá eini... sem ég hef virkilega öskrað yfir. Þá meina ég af öllu afli.

En....ég er þó ánægð með rassinn á mér.
Það gekk vel á tónleikum á Prikinu síðustu helgi...
Ég er líka ánægð með einkunnirnar mínar það sem af er ári.
Ég er líka ánægð með að Bill Gates ætlar að gefa mest af gríðarlegum auðæfum sínum til rannsókna á alnæmi.
Ég gerði líka góð kaup á frábærri peysu og góðum buxum á útsölu í Reykjavík.
Ætli það séu ekki þessir mínusar í lífinu....sem ég taldi upp áðan....sem veita öllu hinu gildi?

Skrifa athugasemd

SUMARFRÍ

Könnun

Kynþokkafyllsti maðurinn á skjánum?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...